Deildarmyrkvi á tungli 14. mars 2025. Mynd: Eyþór Ingi Jónsson

Deildarmyrkvi á tungli 28. ágúst 2026

Tveimur vikum eftir almyrkva á sólu verður deildarmyrkvi á tungli sjáanlegur frá Íslandi

Aðfaranótt miðvikudagsins 28. ágúst verður deildarmyrkvi á tungli sjáanlegur frá Íslandi, ef vel viðrar. Um djúpan deildarmyrkva er að ræða þar sem 93% af skífu tunglsins er innan alskuggans. Aðeins nyrsti hluti tunglsins er utan alskuggans.

Seinast varð tunglmyrkvi yfir Íslandi 28. ágúst 2025 og næst 12.janúar 2028.

Hvaðan sést tunglmyrkvinn 28. ágúst 2026?

Sýnileikakort af deildarmyrkva á tungli 28. ágúst 2026

Myrkvinn sést best frá austurhluta Evrópu, Afríku, Norður- og Suður-Ameríku og austurhluta Kyrrahafs. Tunglmyrkvinn er tveimur vikum eftir almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.

Tímasetningar tunglmyrkvans 28. ágúst 2026

  • Hálfskuggamyrkvi hefst: 01:23:29
  • Deildarmyrkvi hefst: 02:33:21
  • Deildarmyrkvi í hámarki: 04:12:52
  • Deildarmyrkva lýkur: 05:52:09
  • Hálfskuggamyrkva lýkur: 07:02:00
  • Í Reykjavík sest hálfskuggamyrkvað tungl kl. 06:16.
  • Á Egilsstöðum sest lítillega deildarmyrkvað tungl kl. 05:39.

Í heild stendur tunglmyrkvinn yfir í 5 klst 38 mínútur og 31 sekúndur. Þar af stendur deildarmyrkvinn yfir í 3 klst 18 mínútur og 48 sekúndur.

Við myrkvann er tunglið í stjörnumerkinu Vatnsberanum.

Myrkvinn tilheyrir Saros-röð 138 og er 29 myrkvinn af 82 í þeirri röð.

Deildarmyrkvi á tungli 28. ágúst 2026

Hvað er blóðmáni?

Við almyrkva verður tunglið rauðleitt á litinn. Ástæðan er sú, að ljós frá sólinni berst í gegnum andrúmsloft Jarðar og bregður rauðum blæ á tunglið. Sólarljósið ferðast í gegnum þykkara andrúmsloft sem dreifir bláu ljósi burt á meðan rautt, appelsínugult og gult ljós berst í gegn og lýsir upp tunglið. Rauði liturinn veldur því að almyrkvar á tungli eru stundum kallaðir „blóðmánar“.

Roðinn er ljós frá öllum sólsetrum og sólarupprásum á Jörðinni í einu. Rauði liturinn er misbjartur eða -dökkur, allt eftir því hve rykugt eða skýjað andrúmsloftið er.

Deildarmyrkvinn 28. ágúst 2026 er það djúpur að neðri partur tunglsins verður rauðleitur að sjá.

Almyrkvi á tungli í september 2015. Mynd: Sævar Helgi Bragason

Hvernig get ég fylgst með tunglmyrkva?

Ekki er þörf á neinum sjóntækjum til að sjá tunglmyrkvann, öfugt við sólmyrkva. Aftur á móti er skemmtilegra að fylgjast með tunglmyrkvum í gegnum handsjónauka eða litla stjörnusjónauka.

Hvernig tek ég mynd af tunglmyrkva?

Auðvelt er að taka myndir af tunglmyrkvum með DSLR eða speglalausum myndavélum og góðri linsu með langa brennivídd, t.d. 400mm og lengri.

Nota þarf stöðugan þrífót á meðan almyrkvanum stendur þegar lengja þarf lýsingartímann.

Hvers vegna verða tunglmyrkvar?

Tunglmyrkvar verða þegar sólin, Jörðin og tunglið raðast í beina línu svo tunglið gengur inn í skugga Jarðar. Við almyrkva fer tunglið inn í dimmasta hluta jarðskuggans, sem kallast alskuggi. Hálfskugginn er mun daufari og hálfskuggamyrkvar því vart sýnilegir með berum augum.

Tunglmyrkvar eru ekki mánaðarleg fyrirbæri því braut tunglsins um Jörðina hallar um 5 gráður, svo oftast fer tunglið yfir eða undir jarðskuggann.

Hvað fleira sést á himni?

Að kvöldi 28. ágúst skín Satúrnus gulhvítur vinstra megin við tunglið frá okkur séð. Mars er í austri um kl. 04 að morgni í Tvíburamerkinu, áberandi rauðgulur. Um svipað leyti rís Júpíter skær í norðaustri rétt á undan sólinni. Sólarupprás er kl. 05:58.

Hvenær verða næstu tunglmyrkvar?

Næstu deildar- og almyrkvar á tungli sem sjást frá Íslandi verða:

  • 12.janúar 2028 - Deildarmyrkvi
  • 31. desember 2028 - Almyrkvi
  • 26. júní 2029 - Almyrkvi
  • 20. desember 2029 - Almyrkvi
  • 18. október 2032 - Almyrkvi
  • 14. apríl 2033 - Almyrkvi

Myrkvaútreikningar: Fred Espenak, www.EclipseWise.com

Höfundur
Sævar Helgi Bragason

Sævar Helgi Bragason er vísindamiðlari, fyrirlesari, rithöfundur, þáttastjórnandi og eigandi og ritstjóri icelandatnight.is og solmyrkvi2026.is.

Til baka